|
|
01.06.2008 05:47:13 / brynja
Frakkarnir mínir urðu fyrir menningarlegu áfalli í gærkvöldi eða réttara sagt í nótt 
Þannig er nú mál með vexti að ég sendi þá í höfuðborgina í alvöru skemmtanalíf.
Kl 00:30 fékk ég fyrsta sms-ið, Brynja where are you Þeir vissu að ég væri að vinna svo kom annað sms kl 01:20 Brynja Mon amour, icelandic people are not very nice... þriðja sms- ið kom kl 03:00 Mon amour we are on our way to the airport see you at the Silver gate...
Þeir komu þessar elskur í algjöru sjokki, þeim fannst Íslendingar dónar, ruddar, kaldir persónleikar, fráhrindandi og bara leiðinlegir. Eina sem þeir gátu svo sagt Brynja, are you sure you are Icelandic?
Finnst frekar leiðinlegt að heyra þetta um okkur Íslendinga, við þurfum að taka vel á móti gestum okkar og vera með opnara hugarfar fyrir erlendum gestum...
»
27.05.2008 13:55:50 / brynja
hvort að ég nenni að halda þessari síðu uppi lengur.
En hvað um það... margt hefur gerst í mínu lífi þessa dagana er búin að vera á fullu einu orði sagt. Ég sem hélt að eftir skólannn yrði slakað aðeins á. Ég hef komist að því að það er eitthvað sem ég bara get ekki svo er víst. Er búin að vera að þeysast um landið með Frakka sem ég er ný búin að kynnst vegna vinnu minnar. Þvílík og önnur eins skemmtun 
Þann 11. ágúst held ég til meginlandsins með viðkomu í Frakklandi auðvitað og enda á Spáni. Ég er nú með miða báðar leiðir en hugurinn minn er í öðru hvoru þessu landi og látið ykkur ekki bregða ef ég kem ekki heim...
Þannig er það nú bara
»
14.05.2008 04:23:25 / brynja
þegar mér líður vel...
Skólinn búinn, hvað verður er ekki vitað.
Lífið er dularfullt en stórkostlegt í senn...
Farðu svo að drífa þig heim strákur 
»
02.04.2008 15:16:14 / brynja
Fyrir íslenskum atvinnubílstjórum. Þið eigið medalíu skilið fyrir frábær mótmæli... Þið standið ykkur vel og við hin sem ekkert gerum eigum að taka ykkur til fyrirmyndar, það ætla ég svo sannarlega að gera
»
30.03.2008 16:36:49 / brynja
Kona fann Alladín-lampa liggjandi í fjörunni. Hún tók hann upp, pússaði hann og hvað haldið þið? Út úr lampanum steig andi. Furðu lostin konan spurði hvort hún fengi þrjár óskir uppfylltar.
Andinn svaraði: ' Neeei--- vegna verðbólgu, stöðugs samdráttar, lágra launa í löndum þriðja heimsins og heiftarlegrar samkeppni um allan heim, get ég aðeins veitt þér eina ósk og hvers óskar þú þér nú ? '
Án þess að hika sagði konan : ' Ég óska friðar í Mið-austurlöndum. Sérðu þetta kort ? Ég vil að þessi lönd hætti að berjast hvert við annað.'
Andinn leit á kortið og hrópaði : ' VVVWaaaááááá, er ekki í lagi með þig manneskja ! Þessi lönd hafa átt í stríði í þúsundir ára. Ég bý yfir miklum mætti, en svona rosalega máttugur er ég ekki ! ' ' Ég held að þetta sé ekki framkvæmanlegt, þú verður að óska þér einhvers annars. '
Konan hugsaði sig um augnablik og sagði svo: ' Okey, ég hef aldrei getað fundið rétta manninn, þú veist : sem er tillitsamur, skemmtilegur, finnst gaman að elda, hjálpar til við að þrífa húsið, er góður í rúminu, semur við fjölskyldu mína, er ekki alltaf að horfa á íþróttirnar og er mér trúr. Já, það sem ég óska mér er : Góður maður ! '
Andinn gaf frá sér langt andvarp og sagði : ' Láttu mig sjá þetta fjandans kort '
»
27.03.2008 22:08:20 / brynja
kannski ekki lengur Ég veit ekki alveg hvað skal segja um þessi kreppumál hér á landi. Þetta er alveg með ólíkindum dísel olía 155,30 kr, mjólkin að hækka upp í 100 kr. og hvað segja landsmenn? jú jú þeir segja bara það er allt í lagi... Ég spyr er ekki allt í lagi með fólk? Mér finnst það bara ekki neitt í lagi að mjólkurvörur hækki hvað þá aðrar vörur. Þetta er gott fyrir bændur jú ok gott og vel, gæti verið en er þetta gott fyrir mig? mmm nei ég þarf að borga 14 kr meira fyrir mjólkurlíterinn í dag eða 1. apríl ef ég drykki mjólk. Af hverju í ósköpunum erum við ekki búin að skipta um gjaldmiðil hef nú alltaf verið talsmaður evrunnar þó svo að annar gjaldmiðill gæti alveg gengið. Ég ek um á Toyota Yaris og dísel í þokkabót algjör drossía nema hvað að um síðustu mánarmót borgaði ég 28.000 kr. í bílalán... þessi mánaðarmót þarf ég að borga litlar 36.000 kr. rúmar. Þetta verður til þess að ég er hætt að drekka mjólk hún er orðin svo dýr  hætt að vera með GSM þannig að afsakið það mínu kæru vinir og vandamenn þið þurfið að ná í mig í gegnum E:mail  Ætla ekkert að ferðast erlendis í sumar, ætla að hætta með Stöð 2 og Sýn, ætla að hætta við að kaupa mér veggsjónvarpið fína sem ég sá í síðasta mánuði, eða bíðum við Max raftæki voru að auglýsa rétt í þessu að þeir eiga enn vörur á góðu verði. Kannski þeir eigi veggsjónvarp fyrir mig... Þngað til næst verið sparsöm í kreppunni það borgar sig að spara... en nei alveg rétt ég bý á Íslandi hér er ekki hægt að spara
»
13.03.2008 22:41:38 / brynja
Vil taka það fram að færslan hér á undan sem ég er að tala um fyrrverandi eiginmann og hans óskir um að eiga fyrrverandi eiginkonu fyrir viðhald... þá á ég ekki við MINN fyrrverandi... Þið ykkar sem hafið borið út þá sögu að minn fyrrverandi sé þessi einstaklingur þá því miður verð ég að hryggja ykkur með því að svo er ekki. Veit ekki betur en að minn fyrrvernadi sé mjög hamingjusamur með sinni fjölskyldu.
Fólk þarf að passa sig að vera ekki með svona svakalegar staðhæfingar þegar það veit ekki betur. Ekki bera út sögur um fólk og lesið rétt á milli línanna...
»
26.02.2008 14:12:28 / brynja
OHH þá er ég mætt á klakann aftur... stoppið var nú ekki langt í þetta skiptið en er ég mætti í skólann í morgun þá fannst mér ég hafa verið í margra vikna fríi. Helgarferð til Köben var æði, flugið gekk vel út engin seinkun þótt svo að Iceland Express hafi verið fyrir valinu. Ekki það að ég hafi haft eitthvað á mót því félagi, (hef aldrei flogið með þeim,og þeir urðu fyrir valinu þar sem ég var að notast við gjafabréf ) síður en svo en það er bara búið að vera svo ótrúlega miklar seinkanir hjá þeim núna undarfarnar vikur að það hálfa væri nóg. Helgin leið allt of fljótt og ekki er hægt að segja annað en að hlutirnir gerast hratt í Danaveldi... Aftur á móti þegar komið var að lokum ferðar og komið upp í flugstöð, þá auðvitað var seinkun hjá Express, allt í góðu með það fyrst var það 30 mín svo 1 klst. og svo og svo og svo... Ég er nú í það góðri stöðu hvað varðar vinnuna mína að ég hringdi eitt símtal þangað og fékk það upp að vélin væri ekki lögð af stað frá KEF... sem sagði mér og mínum félögum að það þarf nú engan stjörnufræðing til að reikna það út að vélin yrði í ca 3ja klst seinkun + þær mínutúr sem tekur að hleypa farþegum út, þrífa vélina og helypa nýjum farþegum inn... Engin tilkynning barst í hljóðkerfinu í flugstöðinni ok það er í lagi ( vá hvað ég er tilitssöm ) og í fluginu á heimleið var farþegum ekki einu sinni boðið upp á vatnsopa... nei þú þurtir að taka upp veskið til að borga vatnið. Ég veit að allt er til sölu um borð hjá Express og allt í góðu með það... en þetta blessaða flugfélag þarf að sýna sóma sinn í því að bjóða farþegum allavega upp á eitt vatnsglas ef það er einvher seinkun. Það þurfti ekki nema þessa seinkun og borgun fyrir vatnið hvað mig varðar að ég mun í framtíðinni halda mig við Icelandair... Þar fæ ég meira að segja frítt coca cola þó svo að engin seinkun sé...
»
19.02.2008 18:45:42 / brynja
Það er alltaf verið að breyta look-inu á þessu blogcentral.is 
En hvað um það... Er búin að vera að berjast við smá kvalir í hné, þarf víst að fara til bæklunarlæknis. Það verður gaman að fara til Köben um helgina ( By the way þá er ég af fara þangað ) og þurfa að taka með hjólastól...
Ég tók þá ávkörðun um daginn að hætta að vera pólítísk um tíma, einbeita mér að öðrum hlutum. Það er erfitt, sérstaklega þegar verið er að tala um Álver í Helguvík. Ég er svo sammála henni Ingibjörgu Sólrúnu og hennar skoðunum á álverum núna að ég var næstum því gengin í Samfylkinguna í dag. Svei mér þá... En ég gekk nú ekki svo langt. Er ekki rétt að skoða málið í eitt ár með fleir stóriðjur hér á landi allavega þangað til við vitum hvort að landinn sé að fara á hausinn eða ekki. Er hin mikla kreppa að koma eður ey?
En þangað til næst Verið góð 
»
09.02.2008 23:26:26 / brynja
Er það ekki mjög furðulegt þegar fyrrverandi kærasti/eiginmaður er farinn að byðja fyrrverandi kærustu/eiginkonu um þann greiða að vera viðhaldið sitt??? Ja maður smyr sig 
»
07.02.2008 11:59:46 / brynja
Veðurguðirnir alveg að segja til sín þessa dagana. Svo er sagt að öskudagur eigi sér átján bræður, og í gær öskudag var snjókoma, logn, hagglél og rok. Nú vitum við hvernig veður er framundan.
»
01.02.2008 00:10:02 / brynja
I AM IN LOVE 
»
29.01.2008 22:14:57 / brynja
Þriðja vikan byrjuð í skólanum, var eitthvað erfitt að komast í lærdómsgírinn en loksins í gær sá ég ljósið. Það hafa margir komið til mín og spurt mig af hverju ég skráði mig úr Framsókn. Ástæðurnar eru margar og ætla ég svo sem ekki að tíunda þær hér, en aðalástæðan er sú að mér finnst mikið vera að innan forustunnar og mikið um tækifærisinna. Það er nú alveg örugglega þannig innan allra stjórnmálaflokka að fólkið skiptist í tvær eða fleiri fylkingar, en því miður og það er erfitt að horfa upp á það þá er farið að nota skotvopn innan forustu Framsóknarflokksins. Einnig finnst mér dapurlegt að horfa upp á alþingis menn innan flokksins koma fram í hverju viðtalinu á fætur öðru og þegar verið er að tala um fylgi og gengi flokksins þá koma ávallt upp sömu svörin og þau eru að gengi flokksins er alltaf einhverjum örðum að kenna en forustunni. Þeir þurfa að fara að líta í sinn eigin barm og skoða innsta hringinn. Það er eitthvað stórvægilegt að þar. Ég var á fræðsluráðs fundi í gær á Hjallatúni og þar var mér hugsað um Framsókn þegar skólastýran þar hún Ólöf sagði að á leiksólanum sínum væri unnið sem ein heild, sem eitt lið. Þar eru börnin þeirra, ekki börnin mín og þín heldur börnin okkar. Sp. að Framsókn fari nú að taka upp þennan hugsunarhátt og fari að vinna sem ein heild og hugsi og hlusti á flokksystkin sín. Þá er ég alveg viss um að margt af því frábæra fólki sem hefur yfirgefið flokkinn snýr aftur...
»
21.01.2008 23:13:06 / brynja
Sævar bróðir búinn að útskrifast. Ég er brjálæðislega stollt af litla bróður í annað sinn Fyrst var það þegar hann eignaðist fallegasta prins í heimi, Gabríel Aron og svo núna, útskrifaður lögfræðingur... Til lukku elsku bróðir Annað mál sem er reyndar svolítið mikið mál, allavega fyrir mig. Ég er búin að segja mig úr Framsóknarflokknum. Fiskisagan flýgur hratt þar sem ég hef nú þegar fegnið tvö boð um að koma í aðra flokka. Ætla nú ekki að gera það, hef hugsað að vera óháð um tíma...
»
19.01.2008 08:00:32 / brynja
Enn snjóar... Var í afmæli í gær í Hafnarfirði hjá vinkonu minni henni Sigrúnu. Það var einu orði sagt ÆÐI. Þar voru kokkar að elda ofaní 45 kerlur Brasili og Íslendingur þeir Beggi og Pacas. ( Vill svo til að það er viðtal við þá í Mogganum í dag ) Ekki nóg með það að þeir elduðu heldur var salsa kennsla hjá þeim líka. Vá þvílík snilld. Mamma og tengdó voru í brjáluðum salsa feeling og tóku þær sporin nokkuð létt  elsku Sigrún, takk fyrir frábært boð! Speki dagsins: Engi maðr skapar sik sjálfr.
»
Síður: 1 2 3 ... 5
|
|